HTML visitor Tracker

Tuesday, December 16, 2008

Sorrý...
hér er slóðin: Emilía Október 2008
MYNDIR MYNDIR MYNDIR MYNDIR...

Hér koma myndir frá því í október 2008. Ég var nú búinn að setja inn myndir frá því í mars en þá þarf bara að fara að brúa vilið milli mars og október. Bæti úr því. Síðan koma nóvembermyndirnar inn, er loks búinn að tæma úr myndavélinni inn á tölvuna og því varla margt til fyrirstöðu að setja þetta inn á veraldarvefinn.

Annars er það að frétta af Emilíu að hún er farin að mynda tveggja orða setningar, kallar mig loks pabba en ekki Guðjón, og er farin að horfa á fleiri teiknimyndir en bara Simpsons :o)

Jæja, en hér er slóð á síðuna með myndunum:

Emilía Október 2008

Tuesday, July 15, 2008

Hvar eru myndir...

spyrja MJÖG margir þessa dagana. Það er ekki að undra enda hefur hér ekki verið líf í marga mánuði og nýjustu myndir eru frá því í febrúar. Ég sé reyndar ekki að miklar líkur verði á gnægð mynda hér á næstunni, því miður. Ástæðan, jú, myndavélin okkar er í Danmörku. Hún "gleymdist" þar eða þannig. Við hyggjumst reyndar fá myndir frá ömmum og öfum til að setja hér inn innan skamms, þar sem eftirspurn er mikil en henni höfum við augljóslega ekki annað.

Tuesday, February 12, 2008

Fleiri myndir...

Nú er ég búinn að setja myndir af Emilíu frá því í janúar. Síðan við skrifuðum eitthvað á síðuna hefur Emilía orðið fullorðnari og fullorðnari. Þann 6. febrúar sl. varð litla rúsínan einmitt eins árs og var það stór dagur hjá henni. Síðan hefur hún verið að taka sín fyrstu spor þessa dagana og herma staðfestar fregnir um að hún hafi tekið mest 10 skref einn daginn. Við foreldrarnir erum náttúrulega voða montnir af snúllunni okkar út af þessu.

Hér koma svo myndirnar nýju:

Emilía Janúar 2008

Monday, February 11, 2008

Myndir frá því í desember...

Já, ég veit að þetta gengur hægt, en þetta kemur allt saman.

Emiía Desember 2007

Sunday, November 18, 2007

Myndir frá Englandi...

Jæja, þá er ég búinn að setja inn helling af myndum af Emilíu frá Englandi.

Emilía England Nóv 2007
Hæ hæ allir, alveg kominn tími á fréttir frá fjölskyldunni á Sólbakkanum.
Við fórum til Manchester um mánaðamótin og vorum alveg í skýjunum eftir þá ferð, ekkert smá gaman að hitta Ágústu og Andý og einnig Ólöfu, ekki oft sem við erum saman systurnar. Við áttum góðar stundir hjá þeim í fína húsinu þeirra, þar er ekki hægt að óska sér betri gestgjafa, þau redduðu öllu fyrir Emilíu, bílstól, rúmi og hástól, btw þau fengu bílstólinn á eitt pund á ebay, algjör snilld.
Emilía fékk að hitta vini sína Tom og Ben sem eru tveggja mánaða, þeir eru systursynirAndy, algjörar snúllur. Það er nú ekkert lítið fyrirtæki að vera með tvö börn, tvennt af öllu, hresst.

Emilía er alltaf að þroskast meira og meira og það er svo yndislegt að fylgjast með henni, hún lærði að veifa hjá Ágústu frænku, voða dugleg, veifið er mjög fullorðinslegt, ekki svona kreppa-hnefann veif eins og sum börn gera en ekki heldur drottningaveif, einhversstaðar þarna á milli
Svo kann hún að klappa(mánuður síðan hún lærði það, frekar sein með fréttir), hún klappar stundum þegar maður veifar henni og öfugt(allt að koma) og svo um daginn þá var hún eitthvað að kvarta en var samt líka að klappa eins og hún yrði að halda uppi fjörinu þrátt fyrir þreytu, æi frekar fyndin þessi elska.

Nú er hún byrjuð að standa upp og labba aðeins meðfram, fjörið er s.s byrjað. Ég vaknaði eina nóttina við hana standandi í rúminu sínu grátandi, mér brá frekar og við voru ekki lengi að lækka botninn í rúminu.

Við skötuhjúin fórum á Bubba tónleika í gær í tilefni að Jónasardeginum, það var mjög fínt, Bubbi er alveg ágætur, hann sagði skemmtilegar sögur á milli á dönsku en mamma hann er dönsk og talar hann fína dönsku. æi hann er samt svo spes, virkaði eins og hann nennti ekkert að vera þarna, spurði fólkið hvað klukkan væri og var ekkert hrifinn af því að fólk væri að taka myndir af sér, bara svona týbískur Bubbi.

En það er annars bara allt gott að frétta af okkur, við komum heim til Íslands 21. des og verðum til 4. janúar, ekkert voða langt frí en ég er að fara í próf í byrjun janúar.

Hér eru nokkrar myndir, úr ferðinni,kann ekki alveg á myndasíðuna þannig að Guðjón bætir myndum inn á hana við tækifæri.

















Wednesday, October 24, 2007

Veikur mánuður...

Jæja, ekki er hægt að segja að októbermánuður hafi verið með þeim betri. Emilía byrjaði á vöggustofunni í byrjun mánaðarins og ekki leið á löngu þar til hún tók pestina sem var að ganga og sömuleiðis við foreldrarnir. Nú er Kristín með hita en við Emilía stigin á fætur svo að þessu fer vonandi að linna. Haustfríið fór allt út um þúfur þar sem hele familien var rúmliggjandi. Vonandi verður mannskapurinn þó allur til í tuskið þegar við leggjum í hann til Manchesterborgar í lok mánaðarins.

En nú er ég búinn að setja inn myndir frá því í september og nú í október, þess verður þó að geta að myndirnar frá í október eru teknar fyrir krankleikann hehe.

Emilía September 2007

Emilía Október 2007

Sunday, October 07, 2007

Nú er Emilía búin að vera á vöggustofunni í viku, og stóð sig rosalega vel. Fyrstu þrjá dagana vorum við bara stutt, bara klukkutíma í senn. Á fimmtudeginum þá fór ég í fyrsta sinn aðeins í burtu, í ca klst. og þegar ég kom til baka þá var hún úti og var voða afslöppuð.....þangað til að hún sá mig, þá varð hún vooða lítil í sér og byrjaði að gráta. Svo á föstudaginn fór ég heim og hún lék sér, borðaði smá og lagði sig í næstum einn og hálfan tíma, ekkert smá stórt skref, var reyndar frekar sár þegar ég kom tilbaka eins og hún hafi allt í einu fattað að ég færi farin þegar ég kom til baka, en þetta er víst bara eðlilegt svona fyrst. Mér fannst frekar skrýtið að labba heim og skilja hana eftir hjá ókunnugu fólki, en þetta venst bara og vonandi á henni eftir að líða vel þarna.
Leikskólakonurnar sögðu að hún myndi eflaust ná sér í kvef fljótlega eftir að hún byrjaði og viti menn sú litla er komin með hornös og kvef í augun, æi ég vorkenni henni svo, á erfitt með að drekka af brjóstinu og vaknaði oft í nótt því hún var alltaf að missa snuðið. Þetta er eiginlega í fyrsta sinn sem hún er eitthvað veik. Það er gott að hjúkrunarkonan er að koma á morgun og þá getum við fengið einhver ráð.
Þannig að þar er spennandi vika framundan...þangað til næst
heyrumst
Kristín